July 03, 2008

Hver hatar lýðræði meira en Björn Bjarnason?

Skuggastelpa-TEXTI-2

---

Við erum kristin þjóð og það finnst mér fyndið að heyra en hér er góður kafli úr heilagri ritningu:

Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig, 36nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín.'

37Þá munu þeir réttlátu segja: ,Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan og gáfum þér að eta eða þyrstan og gáfum þér að drekka? 38Hvenær sáum vér þig gestkominn og hýstum þig, nakinn og klæddum þig? 39Og hvenær sáum vér þig sjúkan eða í fangelsi og komum til þín?' 40Konungurinn mun þá svara þeim: ,Sannlega segi ég yður, það allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér.'

-- Og bara svo að við höfum á hreinu hvar Björn lendir ---

41Síðan mun hann segja við þá til vinstri handar: ,Farið frá mér, bölvaðir, í þann eilífa eld, sem búinn er djöflinum og árum hans. 42Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka, 43gestur var ég, en þér hýstuð mig ekki, nakinn, en þér klædduð mig ekki, ég var sjúkur og í fangelsi, en ekki vitjuðuð þér mín.'

44Þá munu þeir svara: ,Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan eða þyrstan, gestkominn eða nakinn, sjúkan eða í fangelsi, og hjálpuðum þér ekki?' 45Hann mun þá svara þeim: ,Sannlega segi ég yður: Það allt sem þér gjörðuð ekki einum hinna minnstu bræðra minna, það hafið þér ekki heldur gjört mér.' 46Og þeir munu fara til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs."


June 27, 2008

Tinni í Írak

Tinni-i-irak-1b

June 04, 2008

Gefðu mér sneið af þessari gómsætu hnattrænu hlýnun

Ó ef það væri ekki fyrir þessa vondu leiðtoga
þá værum við góð þjóð
værum ekki að berja samlanda
skrifuðum ekki upp á stríð
horfðum ekki upp á blanka öryrkja
misnota kerfið
héldum verðbólgunni niðri
allir fengju góð laun
fyrir góða vinnu
bara að við hefðum ekki spillt stjórnvöld
þá værum við frjáls
við værum rík
við værum örlát
ef við hefðum betri ráðamenn
værum við kannski
hætt að borða börn

June 02, 2008

Brennandi heitar fréttir úr kalda stríðinu

Bjarni var betri en Brésnéf. Hlustaði betur.

Mikill leyndardómur B.B.

Smekkur er ekki fyrirfram gefinn. Smekkur er breytilegur. Samt ekki alveg að vild eða á hvaða hraða sem er. Við höldum í hann, teljum smekk okkar samofinn sálinni (eða persónuleika, sjálfi, eftir því hvaða orð hentar þér kæri lesandi, og þinni frumspeki). Hann má ekki vera of fljótandi, hann verður að vera seigfljótandi. Jahérna, svo þú getur ekki afsakað smekkleysi þitt.

Það sem einum finnst mannfyrirlitning og heimska
er fyrir öðrum heilbrigð hægrimennska.

Þetta er hinn mikli leyndardómur.


May 30, 2008

Kommúnistar hlera þá

Ég var að lesa eitthvað svona: ég er ekki feiminn við að segja skoðun mína! Svona segir margt gott fólk sem er stolt af því að þora að segja skoðanir sínar. Ég held ég sé einn af hinum. Ég er oft feiminn við að segja skoðanir mínar. Ekki í riti, en svona í persónulegum eða ópersónulegum samskiptum við raunverulegt fólk. Af hverju? Er það mannhatur? Ég nenni ekki að rífast við vitleysinga. Telur undirvitund mín að (nánast) allt fólk sé of vitlaust til að tala við í alvöru? Eða er þetta gamalkunn átakafælni vegna þess að ég þrái að öllum líki vel við mig?
Ennnnn, ég get gert þetta svona, á neti, í bókum og blöðum. Einn tveir og hata.


May 26, 2008

Mosfellsbær - Kjalarnes - Akranes spengdur í loft upp

Ég vona að Háskólinn komist í hóp 100 best klæddu háskóla í heimi.
Hann er sannkallaður hólmsteinn samfélagsins (verður það sagt um þá sem leggja sitt af mörkum til niðurrifs samfélagsins?)
Senda sprengjuflugvélar á Akranes? Haldiði kannski með Saddam eða hvað?
Ljóð línu skip
ting.

Við erum kristileg siðgæðisþjóð og tökum ekki við flóttafólki meðan götubörnin á skaganum leita að hálfétunum samlokum og lífrænum leysiefnum til að sniffa í ruslatunnum.

May 24, 2008

Er ég feministi eða ekki, ég skil ekki spurninguna?

Ég virði konur,
    in fact ég dýrka þær.

en "góðir farþegar við fljúgum í fimmþúsund feta hæð"
HJÁLP ÞAÐ ER KONA VIÐ STÝRIÐ

ég meina kommon ég er ekki rassisti
    en það er samt gott endrum og sinnum

ég græt í laumi  feðraveldið mitt



May 21, 2008

Fjölmenningardrulla

Ég er að skrifa smávegis grein. Mig vantar upplýsingar. Getur nokkur bent mér á (með vísun):
  • "Fjölmenningarsinna" sem með einum eða öðrum hætti hefur gefið í skyn að fólk geti verið undanþegið lögum um mannréttindi, réttindi kvenna og barna, eða öðru í þeim dúr.
  • Einhvern texta sem skilgreinir markmið og sýn íslenskra femínista, sérílagi: hvort þeir líti (gróflega) svo á að kúgun kvenna sé afleiðing náttúrlegra eiginleika karla/kvenna eða afurð kapítalismans. Það sem ég fann á vefsíðu femínistafélagsins segir mér nánast ekki neitt.
  • Póstmóderníska afstæðishyggjumanneskju sem leggur blessun sína yfir misrétti með þeim rökum að um sé að ræða "aðra jafnréttháa menningu"
Fyrir þá sem vilja vita er ég að lesa bók Mörthu Nussbaum, Sex and Social Justice, grein Gayle Rubin "The Traffic in Women: Notes on the 'Political Economy' of Sex", og ég er að reyna að finna femínista sem nota Marx við sína greiningu, auk þess sem mig vantar tölulegar beinharðar ískaldar staðreyndir um kynlífsiðnaðinn, vændi og klám. Jæja krakkar, getur einhver hjálpað mér?

May 20, 2008

Leiðingjarn Magnús rasisti

Hvernig gat ég gleymt fimm þúsund milljón manns sem annaðhvort hafa enga vinnu eða þurfa að þræla í leiðindum? Leiðindi eru að strita í tilbreytingarleysi. Kannski er það verra en bara leiðindi.

Magnús Þór Hafsteinsson er ekki endilega rasisti. Hann er bara stjórnmálamaður, þarfnast atkvæða. Fær þau frá hræddu fólki. Gaman að velta fyrir sér hvernig hefði verið fyrir fátæka Evrópubúa, eins og Vestur-Íslendinga, fyrir um hundrað árum ef Ameríkanar hefðu ákveðið að flytja ekki inn fólk fyrr en búið væri að leysa þarlend félagsleg vandamál. Annars held ég að M.Þ.H. og félagar séu stórhættulegir, þeir tala eins og Pia Kjærsgård, sem var talin hlægilegur rasisti og varla í húsum hæf áður en að Danir tóku hina miklu hægribeygju og urðu þjóðernissinnar. Þetta segi ég, fullviss um að það er ekki vottur af hatri í hjarta M.Þ.H.

Skemmtileg nýjung í rökvillusöfnin: reductio ad reductio ad hitlerium. Það að segja andstæðinga sína ómarktæka vegna þess að þeir líki sér, eða tengi sig á einhvern hátt, við Hitler. Jafnvel þótt bent sé á augljósar hliðstæður við eitthvað sem gerðist á valdatíma hans.

Gleymdu þínum minnsta bróður meðan fólk bíður eftir félagslegu húsnæði á Akranesi.